Monday, November 7, 2011

#10


Til að beina athyglinni frá þessu æðislega veðri keypti ég mér blað í dag sem ég hef aldrei keypt áður, það er danskt og heitir Costume. Bara ágætt blað, er rétt búin að glugga í það, frekar vandað og í sama stíl og þessi dönsku tísku- og hönnunar blöð. Ég rakst þó á síðu sem var auglýst þar sem er frekar mikið áhugaverð, hún heitir www.stylegallery.dk sem að er síða sem tengist þessu blaði á einhvern hátt og inniheldur fjöldan allan af streetstyle myndum af stelpum í danmörku og fullt fleira sem gaman er að skoða :) Myndir?







Úúúú svo var ég að kaupa mér nýjan síma! Ég kemst á mailið mitt og facebook og bloggið og allt! sem er lúxus fyrir mig því ég hef bara átt fornaldarsíma sem er á mörkunum að virka enda var mér alveg sama þegar hann datt alltaf í jörðina og svoleiðis :) 


Örugglega rooosa gaman að vera svona handamódel fyrir síma..


No comments:

Post a Comment